25.12.06

jóladagur

sælt veri fólkið

21.12.06

21 dagur desembers

Nú er liðinn góður tímí frá því ég skrifaði síðast á þessa síðu.
Síðan þá hefur lítið gersta annað en það að ég er búin að fá út úr prófunum og búin að vera að vinna næstum heila vinnuviku!!!!
Einn náunginn í vinnunni veit nákvæmlega hvernig á að koma fólki í jólaskap - hann er nefnilega búinn að vera í jólasveinabúiningi núna síðustu daga. (JÁ! í vinnunni)
Ég skil ekki afhverju petro-canada getur ekki tekið sér valvoline til fyrirmyndar í sambandi við merkingar á vörum. Það er næstum ómöglegt að þekkja sumar af þessum koppafeitum í sundur ($%&&/#$%) - en aftur á móti þá er alls ekki leiðinlegt að merkja þær (þ.e þegar maður hefur fundið út hvað er hvað)

Kveð í bili
SIRRY

15.12.06

loksins, loksins

Prófin eru búin, og nú er ekkert að gera nema slappa af, vinna og sitthvað fleira....

Undarlegt.
Ég fór í 6 búðir í dag til að spyrja eftir stórum púslkúlum en enginn virtist vita hvað ég ætti við!!!
Þegar ég útskýrði það: kúla sem maður púslar saman - - fékk ég að vita að þær voru búnar í þeirri stærð sem ég vildi. -HVAÐ Á ÉG NÚ AÐ GERA!!- ekkert nema vona að þær komi aftur.

Jibbííí
Ég fékk Bókatíðindi í dag. Þau komu til mín í sérmerktu umslagi - - - :(OD

13.12.06

Eitt próf eftir

Nú er ég orðin alveg dauðþreytt á öllu þessu prófastandi, eins gott að það sé bara eitt próf eftir. Ef svo væri ekki er ég viss um að ég færi yfirum.....

7.12.06

kontraposto

uss.. brátt er vikan á enda.
Í gær fór ég út að versla með foreldrum mínum. Við keyptum næstum allar jólagjafirnar, svo nú eru aðeins örfáar eftir. Ég er þegar byrjuð að pakka inn - -> afsökun fyrir að læra ekki :0)
Nú á ég bara eftir að finna mjög fáar gjafir. Ætli Bryndis komi í bæinn um helgina?

6.12.06

jarðskjálftamælir

lítil eðla skreið upp laufblaðið

5.12.06

'Allo 'Allo

æðislegir þættir

Núna eru tvö próf búin
Eins og vanalega á prófatímum þá er ég gjörsamlega dottin niðrí 'Allo 'Allo þættina, hrein snilld

2.12.06

Ingjalds belja

Upp á síðkastið hafa draumar mínir verið frekar undarlegir. Látið fólk, hrekkjavaka, bækur og núna Ingjalds belja (hvað svo sem það er).
Gaman væri að vita hvort það væri eitthvað til sem bæri nafnið Ingjalds belja, en því miður hef ég ekkert enn fundið neitt um það.

Í gær keypti ég teiknimyndasögubók með sögum eftir Don Rosa. Ég hef reyndar lesið flestar sögurnar, en mig langaði bara svo að eiga þær svona á einum stað. Þetta var önnur bókin með ævisögu Jóakims Aðalandar.
Ég rakst einnig á fyrrihluta 5 seríu 'Allo 'Allo og stóðst ekki mátið, sem er reyndar slæmt því nú gæti farið svo að ég ætti eftir að liggja yfir þeim þáttum út jólaprófin.